Bangsímon - UPPSELD !!!
Þessi stórkostlega bók hefur nú verið endurprentuð eftir að hafa selst upp í fyrra.
Bangsímon býr í Hundraðmetraskógi ásamt vinum sínum Gríslingi, Eyrnaslapa, Kaninku, Köngu og Gúra. Hér segir frá skemmtilegum uppátækjum þeirra og ótrúlegum ævintýrum.
Þessi bók hefur að geyma fyrstu sögurnar um Bangsímon sem gerðu hann að heimsins vinsælasta bangsa fyrir meira en áttatíu árum. Sögurnar koma nú út í fallegri hátíðarútgáfu með upprunalegum teikningum í snilldarþýðingu Guðmundar Andra Thorssonar.
Bókin hlaut barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar fyrir best þýddu barnabókina árið 2008.

Verð.
.-
Tengdar vörur
- Í rúm áttatíu ár hefur Bangsímon heillað lesendur um allan heim. David Benedictus flytur okkur nú á vit fleiri ævintýra í Hundraðmetraskógi.
- Við heimsækjum aftur hinn friðsæla og vinalega Hundraðmetraskóg í félagi við Bangsímon, Grisling og Jakob Kristófer.