Nýir áskrifendur fá tvær bækur á verði einnar - Prjónað í dagsins önn og Prjónað á börn !
Hugmyndabanki heimilanna er skemmtilegur bókaklúbbur sem sendir félögum nýjar og vandaðar föndur- og tómstundabækur annan hvern mánuð. Hver bók kostar aðeins 2.580 kr. til klúbbfélaga.
Bækurnar eru ríkulega myndskreyttar og hafa að geyma frábærar hugmyndir sem geta hjálpað þér að lífga upp á heimilið og veita sköpunargleðinni útrás! Félagar fá sex nýjar bækur á ári. Ef þér líst ekki á bókina geturðu skipt henni fyrir aðra í þjónustumiðstöð okkar.
Veittur er 3% afsláttur ef greitt er með greiðslukorti. Ef greitt er með greiðsluseðli bætist við 100 kr. seðilgjald.
Athugið að greiðandi áskriftarinnar þarf að vera orðin 18 ára.
Félagar í klúbbnum fá 15% afslátt af almennu verði mánaðarbóka í öðrum klúbbum auk fjölda tilboða sem sjá má á heimasíðu okkar, edda.is, eða í þjónustumiðstöðinni að Síðumúla 28, Reykjavík. Þú skuldbindur þig aðeins til að fá þrjár sendingar frá klúbbnum, eftir það getur þú sagt upp áskrift með einu símtali.