Syrpa 185
Mikki og Andrés reyna fyrir sér sem götulistamenn í Austurlöndum. Þeir slást í för með heillandi og fingralangri dansmey.
Stálöndin fær að glíma við tæknivædda glæpamenn sem geta séð fyrir hverja einustu hreyfingu hennar.
Jóakim tekur frændur sína með sér í fjársjóðsleit á slóðir skiplausa sjóræningjans.
Andrés og Fiðri eru svo óheppnir að lenda í klóm páfagauksræningja og Andrés fær að dúsa með síblaðrandi páfagauknum.
Bjarnabófarnir eignast sína eigin baðströnd á löglegan hátt, en það er óvíst að þeir nýti hana í samræmi við lög og reglur.
Verð.
1.490.-
Tilboð. 590.-
