-
Andrés Önd tbl. 26 árg. 2010
Verð. 490.-
Andrés og Andrésína eru í fríi á sólarströnd. En þar eru líka frægir menn og fantar og Andrés lendir upp á kant við hvora tveggju. Grænjaxlarnir eru að kynna starf sitt í útlöndum. En í skemmtiferð lenda þeir í dularfullum kynjastað. -
Andrés Önd tbl. 25 árg. 2010
Verð. 490.-
Andrés er kominn á rétta hillu í lífinu! Hann græðir stórfé á bragðlaukum sínum. Skyldi það endast lengi? Eftir misheppnað rán lenda tveir Bjarnabófanna á bóndabæ hjá elskulegum hjónum. Sá þriðji liggur á gægjum og fylgist með. -
Andrés Önd tbl. 24 árg. 2010
Verð. 490.-
Með vísindalegum aðferðum reynir Andrés að komast að því af hverju Hábeinn er heppinn og að verða jafn heppinn og hann. Mína er alveg heltekin af einhverjum tölvuleik í netheimum. Mikki grípur til örþrifaráða til að ná sambandi við hana. -
Andrés Önd tbl. 23 árg. 2010
Verð. 490.-
Enginn virðist muna eftir afmælinu hans Andrésar og hann er svo dapur að hann leiðist út í hættulega tilraun. Á býlinu hennar ömmu andar er kominn nýr hani sem alltaf gelur á miðnætti – en ekki í dögun. Amma er ráðalaus. -
Andrés Önd tbl. 22 árg. 2010
Verð. 490.-
Fyrir tilviljun öðlast Andrés dýrlega söngrödd og skráir sig í söngkeppni. En þar er fyrir annar keppandi sem tryllir Andrés. Í hitabylgju reynir Jóakim að spara með ódýrri loftkælingu. En margur sparar aurinn en kastar krónunni. -
Andrés Önd tbl. 21 árg. 2010
Verð. 490.-
Það er síðasti skóladagur hjá Ripp, Rapp og Rupp og þeir vonast eftir léttum, lærdómslausum degi, en ... Jóakim á sér aðdáendaklúbb og meðlimir fá að heimsækja karlinn í geyminn – en þar fara þeir að færa sig upp á skaftið. -
Andrés Önd tbl. 20 árg. 2010
Verð. 490.-
Í grennd við Andabæ hefur brjálaður vísindamaður sloppið út af hæli og hann lítur nákvæmlega eins út og Andrés. Georg uppgötvar tómstundagaman sem hann langar til að stunda. En því miður vill Andrés endilega aðstoða hann. -
Andrés Önd tbl. 19 árg. 2010
Verð. 490.-
Andrési verður alls staðar hornreka sé frægt fólk nærri. Hann ákveður því að gera ALLT fyrir frægðina. Bjarnabófarnir leggja á ráð um stórglæp til að vinna ,,Óskundann” æðstu heiðursverðlaun undirheimanna. -
Andrés Önd tbl. 18 árg. 2010
Verð. 490.-
Andrés er búinn fara á spæjaranámskeið og er orðinn einkaspæjari. Og fyrsti viðskiptavinurinn er ... Jóakim! Jóakim og Andrés ferðast aftur í tímann til að leita að fjársjóði kóngsins á Krít. En á Forn-Krít eru ófreskjur á ferli. -
Andrés Önd tbl. 16 árg. 2010
Verð. 490.-
Andrésína pantar glæsihatt hjá dýrum hönnuði fyrir hátíð í bænum. En þegar ungarnir sækja hattinn missa þeir hann í svaðið ... Svarti-Pétur er orðinn leiður á hjálparkokki sínum og rekur hann. En það leysir ekki vanda hans. -
Andrés Önd tbl. 17 árg. 2010
Verð. 490.-
Enn er Jóakim kominn út í geim að leita gulls. En hann verður ekki ekki bara þræll gullsins, heldur líka vinnuþræll. Mikki ætlar aldeilis að skella sér í nýja tölvuleikinn sinn – en það er eins og allt leggist á eitt við að hindra hann í því. -
Andrés Önd tbl. 15 árg. 2010
Verð. 490.-
Jóakim frændi lendir í Furðulandi þar sem allt er gert úr peningum. Hvernig bregst aurasál við slíku? Ættaróðal Aðalandanna, Ömurlendur er í hættu vegna fornra lagakróka. Andrés verður að heyja keppni til að bjarga því. -
Andrés Önd tbl. 14 árg. 2010
Verð. 490.-
Páskaskrúðganga Andabæjar stendur fyrir dyrum og nú á að útiloka Andrés frá henni svo hann geri engan óskunda. Í frumskóginum leynast talandi apar, vinir Mikka. En þegar vísindamenn komast að því eru þeir í hættu. -
Andrés Önd tbl. 13 árg. 2010
Verð. 490.-
Andrés verður að komast í starfsviðtal til Gæsabæjar tímanlega. En lestin er sein og Andrés flýtir ekki fyrir henni. Grænjaxlarnir eru í útilegu til að taka myndir af sjaldgæfum dýrum. En hvaða dýr lúrir þarna í skuggunum? -
Andrés Önd tbl. 12 árg 2010
Verð. 490.-
Andrés auglýsir að hann geti hamið skýstrokka. Það er náttúrulega rakin ávísun á hamfarir. Fyrir röð tilviljana er Amma Önd talin vera drottning Hvaðalands og er skyndilega umsetin karlmönnum. -
Andrés Önd tbl. 11 árg. 2010
Verð. 490.-
Andrés fær starf sem bréfberi í Alaska. Metnaður hans er mikill en starfið reynist erfiðara en hann ætlaði. Mikki er að lesa skemmtilega bók – en gamanið tekur að kárna þegar atburðir í sögunni fara að gerast í lífi hans sjálfs. -
Andrés Önd tbl. 10 árg. 2010
Verð. 490.-
Andrés tekur þátt í veiðikeppni en á meðan er Georg að finna upp tæki sem verður Andrési afdrifaríkt. Andrés lofar að sýna frænda sínum hvernig landa megi feitum samningi. En það kostar sitt ... -
Andrés Önd tbl. 9 árg. 2010
Verð. 490.-
Hexía reynir enn að ná í happaskildinginn. Og nú með galdri sem gerir Jóakim gjafmildan á fé. Jóakim virðist vera að fara aftur í keppni við sér yngri menn og gerir stór mistök í viðleitni til að sanna sig. -
Andrés Önd tbl. 8 árg. 2010
Verð. 490.-
Andrés vinnur óhemju verðlaun í sjónvarpsþætti – en þar reynist böggull fylgja skammrifi. Jóakim og frændurnir halda til hafs í olíuleit. En í fárviðri flýr áhöfnin í bátana og skilur þá frændur eftir um borð. -
Andrés Önd tbl. 7 árg. 2010
Verð. 490.-
Á elskendadeginum ætla að Andrés og Andrésína að eiga rómantíska stund í tívolí! En þá dynur bölvunin yfir ... Á Gæsabæjarvelli fer fram knattspyrnuleikur ársins og Andrés neytir allra klækja til að komast þangað. -
Andrés Önd tbl. 6 árg. 2010
Verð. 490.-
Andrés vinnur við að troða skíðagönguslóðir og reynir að hjálpa grænjöxlunum að vinna keppni í skíðagöngu. Mikki fer til að bjarga Rafa frá skelfilegu tæki sem hann var að finna upp. En tækið er snjallara en hann grunaði. -
Andrés Önd tbl. 5 árg 2010
Verð. 490.-
Jóakim hefur ekki mikinn áhuga á náttúruvernd. En samt endar hann í kröfugöngu með mótmælaspjald. Ungarnir eiga að vinna verkefni í eðlisfræði fyrir skólann. En þegar Andrés kemst með puttana í það er voðinn vís. -
Andrés Önd tbl. 4 árg 2010
Verð. 490.-
Fyrir tæknimistök Georgs breytist Andrés í ofurönd svo nú getur hann klúðrað hlutunum með ofurafli. Mikki fer með Guffa og Kláusi í vetrarferð upp í fjöll. En margt býr dularfullt í fjöllunum. -
Andrés Önd tbl. 3 árg 2010
Verð. 490.-
Andrés og Andrésína fara í tívolí og komast að því að það er ekkert grína að reyta göldróttar spákonur til reiði. Amma önd er rólyndiskona en þegar hún var ung máttu jafnvel hrossaþjófar vara sig þegar hún lét til sín taka. -
Andrés Önd tbl. 2 árg. 2010
Verð. 490.-
Jóakim ákveður að draga úr rekstrarkostnaði með því að ráða eintóm vélmenni í fyrirtæki sín. Í fyrstu gengur allt vel en svo ... Ungarnir geta tekist á við öll vandamál sem upp koma. En þegar illgjörn stelpa flytur í hverfið verða þeir næstum mát. -
Andrés Önd tbl. 1 árg. 2010
Verð. 490.-
Andrésína fer í skíðaferð með fína fólkinu í Andabæ en Andrés svífst einskis til að lauma sér í sömu ferð. Mikki vaknar einn morguninn og virðist vera einn í heiminum. Hvað hefur orðið um alla borgarbúa? -
Andrés Önd tbl. 53 árg. 2009
Verð. 490.-
Jóakim vill landa feitum kaupsamningi og fær Andrés og ungana til að halda mikið gamlársteiti til að heilla væntanlega viðskiptamenn. Andrés verður að koma sér í form til að fá vinnu sem hann var að sækja um. Svo hann fer og ræður sér einkaþjálfara. -
Andrés Önd tbl. 52 árg. 2009
Verð. 490.-
Jóakim ærist þegar fullyrt er að jólasveinninn sé ríkasta vera á jarðríki. En er hægt að sanna að hann sé það ekki? Undarlegur gestur er lentur hjá ömmu önd. Hann er á sleða sem dreginn er af hreindýrum. En ungarnir þykjast vera orðnir of stórir til að trúa á jólasveininn. -
Andrés Önd tbl. 51 árg. 2009
Verð. 490.-
Andrés ætlar að gera það gott við að selja jólatré sem hann er búinn að rækta í áranna rás. En ungarnir eru tregir til að vinna við trjátekjuna. Andrésína vill eiga rómantíska kvöldstund á aðventunni - en Andrés er ekki alveg að ná því til hvers er ætlast af honum. -
Andrés Önd tbl. 50 árg. 2009
Verð. 490.-
Það líður að jólum og bankinn ætlar að gera hús Andrésar upptækt vegna skulda. En þegar neyðin er stærst..... Jóakim lætur meta yfirnáttúrlegan mátt happaskildingsins. En þegar skildingurinn er á ferð fer Hexía líka á kreik. -
Andrés Önd tbl. 49 árg. 2009
Verð. 490.-
Andrés og ungarnir reka besta bakarí og eiga skjótasta sendilinn í Andabæ. En vondir bakarar baka þeim vandræði. Bjarnabófarnir klúðra enn einu ráninu og ákveða að gera eitthvað stórfenglegt til að endurheimta orðspor sitt. -
Andrés Önd tbl. 48 árg. 2009
Verð. 490.-
Andrés ætlar að keppa í erfiðri þríþraut en hugsar meira um að finna upp hjáparbrellur en að þjálfa líkamann. Úna hleypir Bjarnabófunum í peningageymi Jóakims. En hún bætir rækilega fyrir brot sitt. -
Andrés Önd tbl. 47 árg. 2009
Verð. 490.-
Jóakim er að reyna að ljúka miklu gróðabralli. En til þess verður hann að borða spergilkál - sem hann kemur ekki niður. Andrés og ungarnir fara með Jóakim til Englands til að leita að galdraskræðu Merlíns töframanns. -
Andrés Önd tbl. 46 árg. 2009
Verð. 490.-
Jóakim og Fína Fjármann takast á um eign í Hollandi. Og þar kemur krókur á móti bragði á móti króki á móti bragði á móti króki ... Guffi og Kláus telja að velmenni séu að leggja undir sig heiminn og reyna hvor um sig að bjarga veröldinni. -
Andrés Önd tbl. 45 árg. 2009
Verð. 490.-
Jóakim telur sig hafa fundið ráð til að góma Bjarnabófana. En Andrés misskilur brallið og allt fer í vaskinn. Andrési langar á hokkíleik og gerir allt til að verða sér úti um veikindafrí daginn sem leikurinn fer fram. -
Andrés Önd tbl. 44 árg. 2009
Verð. 490.-
Á hrekkjavökudag fær Jóakim sendingu frá Skotlandi. En sendingunni fylgja hins vegar undarlegir atburðir. Bjarnabófarnir erfa kastala og greifatign á Englandi. Það reynist þó minna spennandi en þeir héldu. -
Andrés Önd tbl. 43 árg. 2009
Verð. 490.-
Andrés tímir engu að henda og sankar að sér rusli frá hinum og þessum. Einn dag kemur þessi árátta honum í koll. -
Andrés Önd tbl. 42 árg. 2009
Verð. 490.-
Jóakim fær lánaðan álagaspegil á safn sitt af fágætum munum. En það er varasamt að líta í álagaspegil. Mikki fer andvaka á rölt eina nóttina. Allt í einu situr hann uppi með fagra konu og stolna demantsfesti. -
Andrés Önd tbl. 41 árg. 2009
Verð. 490.-
Andrés gerist póstsendill til að tryggja að viss sending komist örugglega heim til hans. En hversu öruggur sendill er Andrés ? Úr smiðju Carl Barks kemur ný saga um grænjaxlana og svaðilför þeirra lengst uppi í háfjöllum Asíu. -
Andrés Önd tbl.39 árg. 2009
Verð. 490.-
Andrés sýnir náttúrulega hæfileika í bogfimi og ræður sér frægan sérfræðing til að vinna Gullnu örina eftirsóttu. Georg er búinn að finna plánetu úr gulli úti í geimnum og hann, Jóakim og frændurnir fara að leita af henni.. -
Andrés Önd tbl. 38 árg. 2009
Verð. 490.-
Andrés tekur að sér fjáröflun fyrir grænjaxlana þegar ungarnir veikjast. En hann er ekki mikill sölumaður. Jóakim fylgist með Andrési alla daga svo hann svíkist ekki um. En einn daginn snýr Andrés á frænda sinn. -
Andrés Önd tbl. 37 árg. 2009
Verð. 490.-
Andrés reynir að hætta að skrökva sig út úr vanda. En Andrés gengur alltaf of langt - líka í því að segja satt. -
Andrés Önd tbl. 36 árg. 2009
Verð. 490.-
Sumarfríið er búið og Ripp, Rapp og Rupp leggja á ráðin um hvernig fá megi frænda til að flytja til lands án skóla. Jónas nágranni reynist eiga frænda á aldur við ungana. Saman reyna nú piltarnir að stilla til friðar milli þeirra tveggja. -
Andrés Önd tbl. 35 árg 2009
Verð. 490.-
Veitingastaðir með "þema" eru í tísku í Andabæ og Andrés stofnar einn slíkan. En er steinaldarmatur líklegur til að laða að gesti ? -
Andrés Önd tbl.34 árg.2009
Verð. 490.-
Það er hitabylgja í Andabæ og Andrés farinn að vinna í klakaframleiðslu. En viðskiptin ganga furðu illa -- þar til ... -
Andrés Önd tbl.33 árg.2009
Verð. 490.-
Jóakim er með sjötta skilningarvitið þegar hann finnur ógn steðja að peningunum sínum. En of mikil tortryggni getur hitt mann sjálfan fyrir. -
Andrés Önd tbl.32 árg.2009
Verð. 490.-
Ungarnir eru ekki hrifnir þegar þeir þurfa að eyða sumrinu við að gæta húss fyrir ríkisbubba einn. En þar sem ungarnir eru þar gerast líka ævintýri. -
Andrés Önd tbl.31 árg.2009
Verð. 490.-
Frægur flakkari og ferðabókahöfundur er fluttur í hverfið. Andrés og Jónas taka höndum saman um að skáka honum í heimshornaflakki.