Syrpa 378 – Bölvun allra bölvana
Jóakim, sem er ekki hjátrúarfullur, lendir í bölvun allra bölvana og þarf að fá hjálp Lúðvíks til að komast undan henni. Hexía rænir happaskildingi Jóa Rokkafellis til að gera úr honum töfragrip, sem á að hjálpa henni að ná happaskildingi Jóakims. Gömlu auðkýfingarnir þurfa að standa saman gegn henni.
Það er ekki búið að leggja galdra á þessa bók – svo það er alveg óhætt að lesa hana!
Kilja, 256 bls.
Verð.
1.850.-