• Simea, litla systir Vaiönu, á afmæli. Fjölskyldan er búin að skipuleggja spennandi ratleik þar sem Simea leitar að afmælisgjöfinni. Hún fylgir spennandi vísbendingum sem að lokum leiða hana á áfangastað.
  • Á drungalegum rigningardegi standa Bangsímon og vinir hans heldur leiðir og mæna á veðrið – þar til Ugla leggur fyrir þau einfalda gátu. Vinirnir skemmta sér konunglega við að reyna að giska á svarið og ákveða í framhaldinu að halda gátukeppni. Verðlaun fær sá sem getur samið gátu sem...
  • Raya og leyniuppskriftin

    Raya og leyniuppskriftin

    Verð. 2.890.-

    Raya og Benja pabbi hennar ætla að elda góða súpu sem á að verða eins konar sameiningartákn fyrir sameinuð ríki Kúmöndru. Þau ferðast um Kúmöndru til að safna hráefni frá öllum löndunum – en dugir það til?
  • Skellur er úti á engi að skoða skýin með systrum sínum. Þegar dökk ský fara að hrannast upp á himninum ákveða Snotra, Trýna, Skotta og Snoppa að halda heim. Skellur vill ekki fara með þeim – en er það sniðugt?
  • Bingó og Rolli ferðast til Parísar í leit að góðu brauði fyrir franska eggjabrauðið hans Bobba. En einhver hefur stolið öllu brauðinu! Geta hvolparnir leyst ráðgátuna?
  • Þetta er fyrsti vetur Vampírínu í Pennsylvaníu og það er spáð stórhríð. En þegar ekkert verður af snjókomunni saknar Vampírína vetrarríkisins heima í Transilvaníu og gleðinnar í snjónum þar. En með aðstoð fjölskyldunnar og vinanna geta hlutirnir breyst og orðið alveg eins og heima!
  • Bósi tekur að sér að gæta hinna leikfanganna á meðan Oddný skreppur í lystigarðinn með mömmu sinni. En þegar Bósi fær högg á höfuðið byrjar hann að haga sér undarlega og skipta um ham: Fer yfir í spænskan ham og þaðan í endurtekningarham - og svo aftur yfir í spænska haminn! Leikföngin...
  • Henrý vinur Dótu kemur með nýtt leikfang. Þetta eru tvær karatekengúrur í keppnishring. Þau hefja leikinn en það er eins og önnur kengúran sé biluð. Dóta tekur til sinna ráða, finnur hvað amar að löskuðu kengúrunni og læknar hana.
  • Asha hefur það hlutverk að kynna konungsríkið Rósas fyrir ferðafólki. En dag nokurn birtist lítill kiðlingur sem eltir hana eins og skuggi og truflar ítrekað leiðsögn hennar um konungsríkið. Hvað getur Asha tekið til bragðs?
  • Ljónasveitin lendir í ýmsum ævintýrum. Núna verður undarlegt dýr á vegi Besta – allt öðruvísi en hin dýrin á Fögruvöllum. Dýrið er brúnt með hvítar rendur á fótunum, langan háls og hvítflekkótt andlit. Besti reynir að lýsa nýja vini sínum, ókapanum Adabú, fyrir hinum í Ljónasveitinni en...
  • Þær Anna og Elsa ákveða að halda upp á afmæli föður síns, Agnars konungs, með því að leita uppi gamlar minningar. Þær finna gamla kistu á háaloftinu og í henni leynast spennandi upplýsingar sem leiða þær og vini þeirra á vit nýrra ævintýra í leit að dularfullum fjársjóði.
  • Guffi og Mikki eru á leið í árlega veiðiferð. Þeir hlakka mikið til að njóta samverunnar, veiða fisk í friði og ró og æfa nýja kasttækni. En þá gerast óvæntir atburðir og veiðiferðin er í uppnámi.
  • Allt frá því að Vaiana endurheimti hjarta Te Fiti hefur hún verið lifandi goðsögn á eyjunni Motúnjúí. Nú fer hún á vit nýrra ævintýra til að finna eyjuna Motufetu. Hættur eru þar við hvert fótmál og þá er gott að hafa vini eins og Maui skammt undan.
  • Króki finnst fátt skemmtilegra en að leika sér á nýja Ryðdollu-leikvangnum sínum með Leiftri og hinum vinum sínum. En þá birtist dráttartrukkurinn Bubbi og vill keppa við Krók – og sigurvegarinn á að eignast leikvanginn! Krókur tekur áskoruninni og þá hefst hin æsispennandi...
  • Það er gæludýradagur í skólanum hennar Lílóar. Hún ætlar að sjálfsögðu að taka Stitch með sér. Stitch lofar að haga sér vel en lendir óvænt í ótal ævintýrum. Allt fer þó vel að lokum og Líló og Stitch eru alsæl með daginn.
  • Dagný er orðin unglingur og því hafa margar nýjar tilfinningar bæst við stjórnborðið. Tilfinningarnar þurfa að læra að vinna saman til að hjálpa Dagnýju og hvetja hana áfram. En hver skyldi vera mikilvægasta tilfinningin í breytingaferlinu sem unglingsárin hafa í för með sér?
  • Vaiana og flugdrekinn

    Vaiana og flugdrekinn

    Verð. 2.890.-

    Flugdrekahátíðin í þorpinu er ein af uppáhaldsskemmtunum Vaiönu. Á hverju ári kemur hún þorpsbúum á óvart með nýstárlegum og glæsilegum flugdrekum. En þetta árið er flugdrekinn hennar allt öðruvísi en hann verður svo sannarlega lengi í minnum hafður!
  • Bósi, Viddi, Dísa og hin leikföngin eru afar hamingjusöm. Oddný elskar þau og leikur sér með þau á hverjum degi. En dag einn kemur hún með lítinn hamstur inn á heimilið – og hún sér ekki sólina fyrir nýja gæludýrinu. Leikföngunum líst ekki alveg á þennan nýja gaur sem tekur allan tíma...
  • Brúnó Madrígal er gæddur þeirri yfirnáttúrulegri gáfu að geta séð inn í framtíðina. En hann er líka gæddur annarri yfirnáttúrulegri gáfu sem hann hefur ekki sjálfstraust til að láta blómstra: Hann er frábær leikari og elskar leiklist. Fjölskyldan tekur því höndum saman til að fá Brúnó til...
  • Vampírína tekur það að sér að passa Ínu, litlu frænku sína. Hún fær aðstoð frá vinkonum sínum Poppý og Birgittu en líka frá Gregoríu ufsagrýlu og Demi draug. Og ekki veitir af því það getur orðið dálítið flókið að gæta lítillar vampíru.
  • Eyþór fetar í fótspor Klængs-fjölskyldunnar og leggur í leiðangur með vinum sínum til þess að rannsaka betur undirheima Avalóníu. Diddó, Karvel og Sólveig hafa hvorki séð jafn stórfenglegt landslag né eins furðulegar lífverur áður – þar með talið Skvamp. En það er vissara að fara varlega!
  • Á heitum sumardegi ákveða Bangsímon og Grislingur að sigla niður ána. Eynaslapi og Ugla slást í hópinn en vinunum gengur illa að finna góðan trjábol fyrir siglinguna. Þá rekast þeir á Kaninku sem er einmitt með rétta trjábolinn en ætlar að nýta hann í garðinn hjá sér. Þá upphefjast miklar...
  • ÓSK

    ÓSK

    Verð. 2.890.-

    Asha óskar sér heitt og innilega … og lítil stjarna svarar kallinu! Saman fara þær Asha og Stjarna, ásamt geitinni Valentínó, í ævintýralegan leiðangur til þess að frelsa óskir íbúa Rósas frá Magnifíkó konungi. En eru hin forboðnu álög sem konungurinn beitir nægjanlega öflug til að koma í...
  • Á fögrum vormorgni gengur Ólafur fram á yfirgefið hreiður í töfraskóginum. Í hreiðrinu liggur eitt egg! „Ætli þetta sé nýi vinur minn?“ veltir hann fyrir sér.
  • Hvolparnir Bingó og Rolli eru vanir því að Bobbi, eigandi þeirra, fari með þá út að ganga. En nú hafa hlutverkin snúist við. Bobbi fer nefnilega til augnlæknis og fær sterka augndropa. Í kjölfarið sér hann mjög illa svo nú er komið að hvolpunum að fara út að ganga með Bobba og vísa honum...
  • Það er grámyglulegur rigningardagur og því ákveða systkinin Vanda, Jón og Mikki að fara í feluleik. Og auðvitað tekur hundurinn Nanna virkan þátt í leiknum.
  • Kíon og vinir hans í Ljónasveitinni eru í viðbragsstöðu. Híenurnar eru mættar á Fögruvelli! Þegar svo lítill fíll lendir óvænt í flasinu á illskeyttum hópi af híenum bregst Ljónasveitin við af mikilli hörku!
  • Mikki, Mína og félagar þeirra ætla að eyða jólafríinu á litlu notalegu fjallahóteli. Dvölin byrjar vel en svo lendir hópurinn í óvæntum og spennandi ævintýrum í vetrarríkinu á fjöllum.
  • Það snjóar úti svo Dóta læknir ákveður að taka leikföngin út til þess að leika sér í snjónum! En þegar Svala verður ískalt, og hann fer að nötra og skjálfa, er kominn tími á skoðun!
  • Miguel, Abel og Rósa eru með hugann við hátíðina sem er handan við hornið – Dagur hinna dauðu. Miguel vill að Rivera-fjölskyldan troði upp saman og heiðri þannig tónlistina sem er sameiningartákn fjölskyldunnar. Meðlimir Rivera-fjölskyldunnar í ríki hinna dauðu fá sömu hugmynd og troða upp...
  • Madrígal-fjölskyldan hafði þungar áhyggjur af Encanto. Eitthvað undarlegt var að gerast. Jörðin var skrælnuð, plöntur og tré báru enga ávexti og það hafði ekki heyrst í fossinum í marga daga. Antóníó tekur þá til sinna ráða og leggur af stað í leiðangur inn í regnskóginn til þess að leysa...
  • Skrýtinn heimur

    Skrýtinn heimur

    Verð. 2.750.-

    Það eru ólíkir einstaklingar í Klængs-fjölskyldunni: Ægir lifir ævintýralegu og hættulegu lífi í fjöllunum en Finnur, sonur hans, vill hins vegar vera bóndi og lifa kyrrlátu lífi. Eyþór, sonur Finns, telur sig hvorki könnuð né bónda og vill feta sínar eigin slóðir í lífinu. En til þess að...
  • Robbi, Depill og Píla eru hvolpar og dreymir um að verða slökkviliðshetjur. En til þess að svo megi verða þurfa þau að æfa sig og sigrast á ýmsum þrautum. Stundum er líka nauðsynlegt að sýna hugrekki og útsjónarsemi til þess að vinna hetjudáð sem slökkviliðshvolpur.
  • Vaiana kynnist Púa

    Vaiana kynnist Púa

    Verð. 2.750.-

    Dag nokkurn þegar Vaiana er að leika sér á ströndinni kemur faðir hennar gangandi með körfu fulla af gríslingum sem hann ætlar að færa bónda hinum megin á eyjunni. Vaiana slæst í för með honum en tekur fljótt eftir því að einn gríslinganna er út undan og kemst ekki til þess að drekka. Hún...
  • Litlu hversdagslegu hlutirnir í lífinu skipta miklu máli. Í þessari sögu hjálpa vinirnir Bangsímon að finna töfraorðin sem hann vill segja þegar einhver hefur gefið honum gjöf eða verið góður við hann. Orðin sem kosta ekkert en eru samt það fallegasta sem hægt er að gefa öðrum.
  • Raya æfir af kappi til þess að geta orðið verndari drekasteinsins. En stíf þjálfun ein og sér er ekki nóg til þess að ná árangri – jafnvægi er lykilatriði. Því færir pabbi Rayu henni Tuk Tuk sem hún á að gæta og hugsa um meðfram æfingunum. Þau verða fljótt vinir en við þjálfun Tuk Tuk þarf...
  • Krókur er í rólegheitum heima í Vatnskassavin þegar Hanna Gírstöng hringir. Hún og Finnur eru að eltast við glæpagengi þarfnast aðstoðar. Krókur og Leiftur drífa sig til Parísar og leggja sitt af mörkum til þess að koma upp um glæpagengið.
  • Vampírína veit fátt skemmtilegra en spilakvöld og býður vinkonum sínum Poppý og Birgittu heim. Þær spila uppáhaldsvampíruspil Vampírínu, Beinagrindahlaupið. Stelpurnar eru áhugasamar er spilið reynist þeim erfitt og dálítið ógvænlegt. En hvernig á að velja spil á spilakvöldum sem öllum...
  • Skari er mættur! Og hann er staðráðinn í að ná völdum á Fögruvöllum. En hvað gerist þegar Jasiri stofnar andspyrnuhreyfingu híenanna? Hafa vinir hennar burði til þess að hjálpa Ljónasveitinni að verja Fögruvelli?
  • Það gengur allt á afturfótunum hjá Æsu og þrátt fyrir að Bingó og Rolli geri allt sem þeir geta til gera daginn ógleymanlegan – stefnir í að þetta verði einn versti dagur sem hún hefur upplifað. Eða hvað?
  • Skellur er spenntur því hann á að vera heilan dag aleinn með pabba sínum. Hann vonar að þeir muni rannsaka leynihella eða klífa fjöll. En pabbi hans er með önnur plön svo Skellur laumast í burtu og rannsakar umhverfið á eigin vegum.
  • Rauða pöndustelpan

    Rauða pöndustelpan

    Verð. 2.690.-

    Mei Lee er ósköp venjuleg þrettán ára stelpa sem semur vel við fjölskyldu sína og á góðar vinkonur, þær Abby, Priyu og Miriam. En daginn sem Mei breytist í risastór rauða pöndustelpu þarf hún bæði á vinum sínum og fjölskyldu að halda.
  • Það er ekki auðvelt fyrir Mírabel að vera sú eina í fjölskyldunni án yfirnáttúrulegrargáfu. En dag einn virðist töframátturinn í Encanto í hættu. Þá ákveður Mírabel að stöðva breytingarnar og sanna sig fyrir fjölskyldunni í leiðinni.
  • Andrés og skunkurinn

    Andrés og skunkurinn

    Verð. 2.690.-

    Dagurinn hjá Andrési byrjar vel þar til lítill skunkur tekur ásfóstri við hann. Andrés reynir itrekað en árangurslaust að losna við skunkinn. En getur það ekki stundum komið sér vel að eiga skunk að vini?
Vörur : 0
Samtals : 0 kr.
Ganga frá pöntun
Edda útgáfa - Hádegismóar 2 (Hús Árvakurs) - 110 Reykjavík Sími 522 2000